Almennar upplýsingar

Raftæki, rafhlöður, auka- og varahlutir. Verkstæði okkar tekur að sér alla almenna viðgerð rafhlaupahjóla ásamt dekkjaskiptum.

Eftirfarandi skilmálar gilda í vefverslun

SKILARÉTTUR Á VÖRUM

Hjá Escooter getur þú skipt vöru sem keypt er í vefverslun.
Til að hægt sé að skipta vöru þurfa upprunalegar umbúðir að vera til staðar.

Við óskum eftir kvittunum þegar vöru er skipt. Ef varan er ekki til í verslun, er uppseld eða ekki lengur í vöruframboði er vara tekin inn á því verði sem hún er seld úr verslun. Ef vara reynist gölluð er viðskiptavinum boðin sama eða álíka vara í stað þeirrar gölluðu.

Við vöruskil er mögulegt að:

  • Fá aðra vöru í skiptum.
  • Bakfæra upphæð inn á kreditkort viðkomandi hafi varan verið greidd með því korti.
  • Bakfæra upphæð inn á debetkort viðkomandi ef vöruskil eru samdægurs og verslað var og greitt var með viðkomandi debetkorti.
  • Vörur eru ekki endurgreiddar með peningum.

Skilafrestur er 14 daga frá afhendingu. Skilaréttur tekur ekki til útsöluvöru.

Endurgreiðsla fer fram eins fljótt og kostur er og eigi síðar en eftir 30 daga.

RAFRÆN VIÐSKIPTI

Escooter.is sem seljandi vöru áskilur sér rétt að falla frá kaupum og hætta við pantanir ef upp koma villur í skráningu á upplýsingum um vöru af hálfu seljanda t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða annara mistaka sem seljandi kann að gera við skráningu á upplýsingum um verð og eiginleika vöru hvort sem þær villur eru augljósar eða ekki.
Þá áskilur seljandi sér rétt að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir án fyrirvara.

 GREIÐSLA VÖRU

Í vefverslun Escooter.is er tekið við kreditkortum. Greiðsla með kreditkorti fer fram á vörðu svæði þar sem kortanúmerin eru dulkóðuð. Meðferð kortaupplýsinga og greiðslna fer í gegnum örugga þjónustu frá Rapyd.

Pöntun er afgreidd úr vefverslun eins fljótt og hægt er, en aldrei seinna en 24 tímum eftir að pöntun hefur borist. Allar pantanir eru sendar með Íslandspóst.

PERSÓNUUPPLÝSINGAR

Escooter.is meðhöndlar persónuupplýsingar kaupanda vegna notkunar á vefsvæðinu í samræmi við gildandi lög og reglur um meðferð persónuupplýsinga á hverjum tíma.

SKILMÁLAR

Um smásöluviðskipti gilda ákveðnir skilmálar sem skilgreindir eru í neytendalögum. Þá skilmála er m.a. að finna í:

Ábyrgð

Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við neytendakaupalög 48/2003 og miðast við kaupdagsetningu til einstaklinga utan atvinnustarfsemi. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis (atvinnustarfsemi) er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsettningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup lög nr 50/2000.

Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað.

Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits tækis eða notkunar á rekstrarvörum þ.e.a.s. hún nær ekki til tækja sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. En almennur kvörtunarfrestur er 2 ár. Til að mynda er rafhlaða fartölva, farsíma og rafhjóla rekstrarvara og getur þurft að endurnýja fyrir lok vélbúnaðar ábyrgðar. Raftækjaframleiðandi veitir þó að lágmarki 6 mánaða ábyrgð óháð notkun á rafhlöðum (sýna þarf fram á að um galla sé að ræða sé varan eldri en 6 mánaða en ekki t.d eðlilegt slit.) Eðlilegt er að endurnýjun geti átt sér stað bilinu 6-24 mánaða. Ábyrgð fellur úr gildi ef tækið hefur verið opnað eða átt hefur verið við það án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar og er kaupanda bent á að lesa gaumgæfilega leiðbeiningar eða handbók. Ekki er ábyrgð á hugbúnaði eða öðrum óáþreifanlegum hlutum (hlutum sem hafa áhrif á eiginleika tækisins eins og vírusar og annað sem ekki er hægt að rekja til framleiðanda).

Í sumum tilfellum eru einstakar vörur eða vörumerki með lengri ábyrgðartíma. Í þeim tilfellum sem það á við er slíkt tekið fram.

Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir að ábyrgðartíma lýkur.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka. Ef að til úrlausnar ábyrgðar kemur, er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.

Frí heimsending innanlands á öllum pöntunum yfir 10.000kr. Hægt er að velja um að fá vörurnar sendar á pósthús eða heim að dyrum.

Það er ekkert mál að skila eða skipta vörum sem keyptar eru á escooter.is

  • Ekki hika við að senda okkur póst á netfangið escooter@escooter.is
  • Sími 537-4774

Skilmálarnir geta breyst án fyrirvara.

Viðskiptaskilmálar Escooter.is gilda um netviðskipti með eftirfarandi viðbótarskilmálum.

  • Kaupandi þarf að vera orðinn 16 ára til að versla í netverslun.
  • Við móttöku vöru ber kaupanda að yfirfara vöruna og kanna hvort hún er í samræmi við pöntun og sé óskemmd.
  • Kaupanda ber að gera athugasemdir og senda inn kvörtun innan 14 daga frá afhendingu vörunnar sé þess þörf.

Vefurinn er í eigu Escooter einkahlutafélags, kennitala. 500220-1040, vsk. nr. 136980 | Ármúli 42 | 537-4774

Fótspor

Escooter ehf., notar fótspor (e. cookies) til að bæta upplifun notenda á vefsíðu fyrirtækisins. Fótspor eru litlar textaskrár sem geymdar eru á tölvum notenda. Slíkar skrár gefa Escooter kost á að fylgjast með hvernig viðkomandi notar vefsíðu fyrirtækisins. Þegar síðan er notuð í fyrsta skipti þá er óskað eftir samþykki notandans fyrir því að fyrirtækið noti fótspor. Kjósi viðkomandi að samþykkja ekki slíka notkun, þá er mögulegt að vefsíðan sýni ekki fulla virkni.

Escooter notar fótspor meðal annars til að auðkenna netvafrann sem er notaður svo hægt sé að aðlaga vefsíðuna að honum, til að skrá dagsetningu og tíma heimsóknar, skrá IP-tölu auk annarra aðgerða. Þessar upplýsingar eru notaðar í tengslum við kerfisstjórn, bilanaleit, rannsókn á fjársvikum, samskipti frá fyrirtækinu og til að veita sem besta þjónustu. Fótspor eru ekki njósnabúnaður og Escooter safnar ekki upplýsingum um netvafur eða miðlar upplýsingum sem safnast með fótsporum til þriðja aðila, að undanskilinni miðlun sem á sér stað með Google Analytics. Vilji notendur vefsins ekki að fótspor séu vistuð er einfalt að breyta still­ingum vafrans svo hann hafni þeim.

Google Analytics er notað til vefmælinga á vefnum. Þar safnast inn upplýsingar við hverja heimsókn á vef­inn, t.d. dagsetning og tími heimsóknar, hvernig notandinn kemur inn á vefinn, hvaða vafra og hvernig tæki hann notar. Einnig er kannað hvort notast er við leitarorð. Þessi gögn gefa upplýsingar um hvernig hægt er að þróa vefinn og endurbæta virkni hans út frá þörfum notenda. Þessar upplýsingar eru aðeins nýttar við markaðssetningu Escooter á vörum eða þjónustu. Miðlun á IP-tölu á sér stað til Google Analytics í því skyni að nálgast upplýsingar um aðgengi að og notkun á vefsíðu Escooter. Engum öðrum persónuupplýsingum er miðlað til Google Analytics.

 Persónuverndar-yfirlýsing

Við berum virðingu fyrir þér og persónuupplýsingum þínum. Í samræmi við gildi okkar, virðing, einfaldleiki og kraftur, viljum við að þú sért upplýst(ur) um það með einföldum hætti hvernig og af hverju við söfnum, notum og varðveitum upplýsingar um þig og hvaða réttindi þú hefur gagnvart okkur.

Í persónuverndaryfirlýsingu okkar svörum við eftirfarandi spurningum:

1. Hvenær og hvers vegna söfnum við persónuupplýsingum um þig?

Þegar þú ert í viðskiptum hjá okkur söfnum við og höldum utan um upplýsingar sem tengjast viðskiptasögu þinni hjá okkur. Þessum upplýsingum söfnum við til þess að veita þér yfirsýn yfir viðskipti þín við okkur og til þess að við getum boðið þér persónulegri þjónustu. Þegar þú vilt vera í tengslum við okkur og fá upplýsingar (s.s. fréttabréf, markpósta og tilboðsbæklinga) frá okkur með reglubundnu millibili ert þú beðinn um að veita okkur nauðsynlegar upplýsingar.

Þetta er háð þínu vali. Stundum býðst þér að veita okkur, með valkvæðum hætti, viðbótarupplýsingar um þig. Þetta eru upplýsingar sem við óskum eftir því við teljum þær geta hjálpað okkur að veita þér betri þjónustu. Þú þarft aldrei að veita slíkar upplýsingar nema þú kjósir það. Þegar þú notar vefviðmót okkar söfnum við jafnframt persónuupplýsingum með vefkökum (e. cookies), IP-tölum og öðrum upplýsingum tengdum tækinu sem þú notar (s.s. gerð vélbúnaðar, útgáfu stýrikerfis o.þ.h.). Þú getur valið hvort þú kýst að gefa okkur þessar upplýsingar.

2. Hvaða persónuupplýsingum söfnum við um þig?

Persónuupplýsingar sem við söfnum um þig velta á því hvaða þjónustu þú hefur óskað eftir eða í hvaða tilgangi þú hefur nálgast okkur, upplýsingar sem við söfnum eru m.a.:

  • Nafn þitt, kennitala, heimilisfang, símanúmer og tölvupóstfang.
  • Kreditkortanúmer, debetkortanúmer, reikningsupplýsingar eða aðrar bankatengdar upplýsingar.
  • Viðskiptasögu þína hjá okkur, þ.á m. hvaða vöru og þjónustu þú hefur keypt hjá okkur, þegar þú notar vildarkortið eða aðra slíka persónubundna vildarþjónustu.
  • Samskipti sem þú velur að eiga við okkur, s.s. tölvupóstar, skilaboð send í gegnum vefviðmót s.s. mínar síður, hljóðrituð símtöl, bréf eða önnur samskipti.
  • Greiðsluupplýsingar/reikningsviðskiptaupplýsingar s.s. dagsetningar á framkvæmdum eða mótteknum greiðslum.
  • Upplýsingar um notkun þína á vefsvæðum okkar, þ.á m. mínum síðum. Þessar upplýsingar innifela m.a. hvenær þú heimsækir síðuna, hve lengi þú notar hana, ætlaða staðsetningu þína þegar þú notar síðuna, og upplýsingar um tækið sem þú notar til þess að fara inn á síðuna.

og öðrum upplýsingum tengdum tækinu sem þú notar (s.s. gerð vélbúnaðar, útgáfu stýrikerfis o.þ.h.). Þú getur valið hvort þú kýst að gefa okkur þessar upplýsingar.

3. Hvernig notum við persónuupplýsingarnar þínar?

Við kunnum að nota persónuupplýsingar þínar til þess að:

  • Veita þér þá þjónustu eða vörur sem þú hefur óskað eftir.
  • Vinna úr beiðnum sem þú hefur komið á framfæri til okkar.
  • Bjóða þér tiltekna þjónustu á tilteknum kjörum.
  • Upplýsa þig um nýjar vörur og þjónustur.
  • Senda þér reikninga vegna viðskipta við okkur eða rukka þig fyrir þjónustu-og/eða vörukaup.
  • Meta lánshæfi þitt.
  • Átta okkur á því hvernig þú nýtir þér þjónustu okkar og vörur, þannig getum við betur þróað áfram okkar þjónustu-og vöruúrval.
  • Svara spurningum sem þú beinir til okkar.
4. Með hverjum deilum við persónuupplýsingum þínum?

Við kunnum að deila upplýsingum um þig með eftirfarandi aðilum:

  • Yfirvöldum, s.s. stjórnvöldum, dómstólum og löggæsluyfirvöldum
  • Lánshæfisfyrirtækjum og fjármálastofnunum
  • Innheimtufyrirtækjum
  • Þjónustufyrirtækjum sem koma fram fyrir okkar hönd.
  • Sérfræðingum okkar s.s. lögfræðingum, endurskoðendum og ytri ráðgjöfum.

Við deilum upplýsingum einungis með þriðju aðilum skv. vinnslusamningi þar sem kveðið er á um meðferð og öryggi persónuupplýsinga, nema lagaskylda kveði á um annað. Komi upp aðstæður þar sem grunur er um sviksamlega eða ólögmæta háttsemi munum við deila með viðeigandi aðilum persónuupplýsingum sem þýðingu kunna að hafa í þeim tilgangi að vernda hagsmuni okkar, hagsmuni þína og/eða hagsmuni viðskiptavina okkar. Komi til þess að við sameinumst öðru félagi og/eða erum yfirtekin af öðrum eigendum þá kunna upplýsingarnar að flytjast yfir til nýs félags.

5. Hvernig tryggjum við öryggi persónuupplýsinga þinna?                                                                                    

Persónuupplýsingar eru geymdar í viðurkenndum aðgangstýrðum tölvukerfum þar sem passað er upp á að einungis þeir sem þurfa að hafa aðgang að gögnum hafi. Escooter tryggir að allar almennar varnir tölvukerfa séu til staðar, þær uppfærðar og vaktaðar reglulega.

Allur tölvubúnaður sem kemur að geymslu persónuupplýsinga er frá viðurkenndum birgjum, hann er vaktaður og uppfærður reglulega. Keypt er þjónusta frá viðurkenndu öryggisfyrirtæki sem sér um reglulega ytri veikleikaskönnun á öllum ytri þjónustum í rekstri hjá Escooter

6. Hve lengi varðveitum við upplýsingarnar?

Við munum varðveita viðskiptasögu þína í allt að 4 ár í samræmi við punktafyrningu nema lög krefjist eða leyfi lengri varðveislutíma. Ef ekki er lengur þörf á upplýsingunum eða lög kveða á um eyðingu þeirra, verða upplýsingarnar gerðar ópersónugreinanlegar og/eða þeim eytt.                                                                                                                                                                                     

7. Þín réttindi gagnvart okkur?                                                                            

Þú hefur rétt á því að fá upplýsingar frá okkur um það hvernig persónuupplýsingar þínar eru nýttar af okkur og hvaða upplýsingar við höfum um þig. Þú hefur einnig rétt á því að uppfæra upplýsingar um þig þannig að þær séu réttar, óska eftir leiðréttingum eða að upplýsingum um þig sé eytt, enda sé ekki lengur ástæða til þess að við geymum þær. Að sama skapi getur þú óskað eftir því að fá upplýsingar um þig afhentar.

Vakni upp spurningar eða athugasemdir í tengslum við persónuverndaryfirlýsingu þessa eða vinnslu okkar, eða ef þú vilt kvarta yfir mögulegu broti á persónuverndarlögum skaltu hafa samband við okkur með því að hringja í síma 537-4774 eða senda okkur tölvupóst á netfangið [email protected]. Við munum leggja allt kapp við að bregðast við svo fljótt sem auðið er.

Þú hefur einnig alltaf rétt á því að beina kvörtun þinni til Persónuverndar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nú lög nr. 77/2000.

8. Mun þessi persónuverndarstefna breytast?

Persónuverndarstefna þessi kann að breytast með tímanum, t.d. vegna breytinga á lögum og reglum eða opinberum kröfum gagnvart okkur og meðhöndlun persónuupplýsinga. Við hvetjum þig því til þess að fylgjast reglulega með uppfærslum, en þær birtum við á vefsíðu okkar.